É Dúdda Mía
(11. September 2023)
É Dúdda Mía - Album Art, photo: Dagur Bærings Bjarnasson
Hæ hæ :-) hér fyrir neðan er hægt að ýta á + merkið og lesa texta og sjá hverjir gerðu hvað í viðkomandi lagi.
Mig langar að nota tækifærið og þakka öllum sem komu að gerð plötunar - ég veit ekkert skemmtilegra en að taka upp tónlistarfólk og heyra hvenig allt lifnar við hjá þessum snillingum.
Ég vann plötuna að mestu leyti í sendibíl uppá fjöllum eða niðrí fjöru og kláraði hana í eldgömlum sumarbústað (sem starfsmannafélag RUV byggði 1935) í Mosó. Ég myndi segja að meginþema plötunnar sé gapandi undrun yfir lífinu sjálfu - ást og lotning fyrir Kaosnum!
Hlustið á: Spotify eða Apple Music
- 
      
        
          
        
      
      Lag og texti: Mugison’ Sé lífið sjálft lof og dýrð og ljósið í þér, sama hvernig þú snýrð Allamalla amma mammma-mú já haltu á ketti og syngjandi kú Hver stund er svo tær æ fersk og ný svo langt sem það nær, bingolottery Obbobbbobb og abbbabbbabb babú er ég orðin allveg kú kú kú kú kú É dúdda mía gott að vera hér tek sénsinn bara afþví að er á meðan er að gleyma sér hoppa inn í galdurinn ég hristi mig og twista þá magnast friðurinn Simsalabimm Vonin ljúf þráir farsæld og frið en hamingjan hún dýrkar vesenið Þabbba sonna - úbbsadeisí-ú sveimérþá og hannannanna nú Ég trúi á ástina - hún bjargi mér eins og snákaolíur og engifer úlla la la og allt í botn bababú Okidoki! - Ojojoij úhhh húúú Kredit: Kristofer Rodríguez Svönuson: Trommur, Slagverk, Pródúser Björgvin Gíslason: Gítarsóló Baldvin Hlynsson: Hljómborð og Hljóðgerflar Ómar Guðjónsson: Rafgítar Mugison: Söngur, Kassagítar, Slagverk, Gítar og Bassi Stefán Björnsson Önundarson: Pródúser Rúna Esradóttir: Pródúser Birgir Jón Birgisson: Pródúser, Mix og Mastering 
- 
      
        
      
      Lag og Texti: Mugison Það var sungið, dansað og kysst þegar augu þín átu mig fyrst áran skalf og hristi sig hvernig í ósköpunum fannstu mig? Eins og þú, fór ég í ferðalag brenna af mér brýr, þjálfaði hjartað fór niður á botn, lengst uppí ský endurfæddist aftur og aftur á ný Kossaflóð, kveikir glóð hné við hné, kinn við kinn öxl við öxl, skinn við skinn Það skilur mig enginn eins og þú þennan ljóðalínudans eitt skref fram og snú ert svo hrá og göldrótt lést heiminn gufa upp þessa fyrstu nótt Kredit: Þóra Margrét Sveinsdóttir: Pródúser, Strengja og flautu-útsetning, Víola Kristofer Rodríguez Svönuson: Pródúser, Trommur og Perk Birgir Steinn Theodorsson: Kontrabassi Sigrún Harðardóttir: Fiðla Þórdís Gerður Jónsdóttir: Selló Grímur Helgason: Klarinetta Steinunn Vala Pálsdóttir: Þverflauta Þorleifur Gaukur Davíðsson: Mandólín Pétur Ben: Klassískur gítar Mugison: Harmonikka, söngur og brall Rúna Esradóttir: Pródúser Allan Sigurðsson: Pródúser Dýri Arnarson: Pródúser Birgir Jón Birgisson: Pródúser, Mix og Mastering, Upptaka, Hafþór Karlsson Tempó: Upptaka og mix á strengjum, þverflautu og klarinettu 
- 
      
        
      
      Lag og Texti: Mugison Í þér fann ég ró og brotsjó þú varst litrófið allt bæði heitt og kalt en með göldrum gastu bætt allt súrt og sætt huggun, að elska þig svo dýrmætt Að hugsa til þín það gerir mér gott ég finn styrk í því þó þú sért farinn á brott Í þér fann ég mig og sýrustig gróf frammíköll og hlátrasköll Þú skilur eftir sár og tregafull tár en huggun, að hafa átt með þér nokkur ár, nokkur ár Kredit: Kristofer Rodríguez Svönuson: Pródúser, Trommur og Slagverk Þorleifur Gaukur Davíðsson: Pródúser, Pedal Steel Þóra Margrét Sveinsdóttir: Pródúser, Strengjaútsetning, Víola Þórdís Gerður Jónsdóttir: Pródúser, Strengjaútsetning, Selló Sigrún Harðardóttir: Fiðla Ómar Guðjónsson: Kassagítar Mugson: Bassi, Söngur, Brassó Pétur Ben: Rafgítar Baldvin Hlynsson: Píanó og Rhodes Birgir Jón Birgisson: Pródúser, Mix og Mastering 
- 
      
        
      
      Lag og Texti: Mugison Ég snéri sólarhringnum við kúpla út í leit af frið fer af stað - nema nema hvað að finna logn í hvirfilbyl Rútínan hún tæmdi mig öll ábyrgðin og flækjustig nú er það frá, Fúsa liggur á og loks er siglt á önnur mið Sólin er komin og hún hleður mig vindurinn blæs um andlitið sveiflast fram og aftur í takt við útvarpið stundum er bara gott að vera til Endurræsi þessa vél bóna vængi, gogg og stél slappa af, nema nema hvað finn í mér ást og líður vel Sólin er komin.. Kredit: Ómar Guðjónsson: Kassagítar (sóló), Bakraddir, Pródúser og Píanó Helgi Svavar Helgason: Trommur, Pródúser Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson: Bassi, Pródúser Kristofer Rodríguez Svönuson: Slagverk, Pródúser Arnar Gíslason: Slagverk Mugison: Slagverk, Söngur, Kassagítar Rósa Guðrún Sveinsdóttir: Bakraddir Rúna Esradóttir: Pródúser Þorbjörn Sigurðsson: Bakraddir og Rafgítar Þorleifur Gaukur Davíðsson: Pedal Steel Gítar Davíð Þór Jónsson: Píanó og Farfísa Pétur Ben: Rafslagharpa og Rafgítar Jóel Pálsson: Klarinetta Guðmundur Pétursson: Selmer Gítar Birgir Jón Birgisson: Pródúser, Mix og Mastering 
- 
      
        
      
      Lag: Mugison Útsetning: Úlfur Eldjárn Sinfonia Viva: Flytjandi Ragnar Bragason: Pródúser Birgir Jón Birgisson: Mix og Mastering Kom upphaflega út í myndinni Gullregn eftir Ragnar Bragason 
- 
      
        
      
      Lag og Texti: Mugison Það er ekkert mál að hætta það vita allir sem hafa reynt en auðveldast er að falla bara smá, bara smá, óbeint! Það er erfitt að draga andann álag og allt það prump eins og það sé - sent að handan eina í stöðunni - er að fokka sér upp Anda inn, anda út losnar um gamlan hnút og ég er aftur við stýrið um stund gömul ást, gamalt sár aulagrín, apatár ég hristi upp í mér, það léttir lund.. Stundum þarf bara að núlla og keyra sig alveg í þrot sama hvað er reynt - að púlla reyna að koma sjálfum mér aftur á flot. Anda inn, anda út... Kredit: Þórdís Gerður Jónsdóttir: Strengja-klarinettu og flautu-útsetning, Selló, Pródúser Þorleifur Gaukur Davíðsson: Pródúcer, Munnharpa og Pedal Steel Gítar Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson: Kontrabassi Þóra Margrét Sveinsdóttir: Víola Sigrún Harðardóttir: Fiðla Grímur Helgason: Klarinetta Rúna Esradóttir: Pródúcer Baldvin Hlynsson: Hljómborð Mugison: Kassagítar, söngur og brall Birgir Jón Birgisson: Pródúser, Mix og Mastering 
- 
      
        
      
      Lag og texti: Mugison Það er hellt olíu á eld og neistar fjúka um loforð keypt og seld með blíðum augunum Ertu eina sanna stóra stóra ást? Loftið er hlaðið háspennu meir en orð fá lýst taugaboðin í blóðinu svo tryllt og kaotísk Ertu eina sanna stóra stóra ást? Leikur lánið við mig er ég að finna þig loksins - hér og nú Er í faðmi þínum ró Mun ég aldrei fá nóg loksins - ég og þú Sálin er ber og óbeisluð gæskan - umbúðarlaus Þráin er sterk en þrælstressuð og dansar á títuprjónshaus Ertu eina sanna stóra stóra ást? Það er líf út á ystu nöf þar sem áin verður foss Augnablikið er bara töf eftir sjóðheitum koss Ertu eina sanna stóra stóra ást? Leikur lánið við mig er ég að finna þig loksins - hér og nú Er í faðmi þínum ró mun ég aldrei fá nóg loksins - ég og þú Kredit: Þórdís Gerður Jónsdóttir: Pródúser, Strengjaútsetning, Selló Kristofer Rodríguez Svönuson: Pródúser, Trommur og Perk Matthías Hemstock: Tommur Þóra Margrét Sveinsdóttir: Víola Sigrún Harðardóttir: Fiðla Ásgeir Ásgeirsson: Setar frá Íran Þorleifur Gaukur Davidsson: Munnharpa Mugison: Söngur, Bassi, Keys & Gítar Sigríður Thorlacius: Bakrödd Alexandra Kjeld: Bakrödd Rúna Esradóttir: Bakrödd, Pródúser Hafþór Karlsson Tempó: Upptaka og mix á strengjum Birgir Jón Birgisson: Pródúser, Mix og Mastering, Upptaka, Ómar Guðjónsson: Pródúser Dýri Arnarson: Pródúser 
- 
      
        
      
      Lag og Texti: Mugison Rauðbrún, gul, grá, svört og bleik laufin fjúka um á haustdansleik þau stökkva, snúast, algjörlega í takt hvert svif og fall er þræl-skipulagt Ölvaðir þrestir eru að rífa kjaft fljúgast á og drekka berjasaft Kjarrið brakar og hvíslar ofurhljótt vangaðu við mig í alla nótt Ó að sleppa, sleppa, sleppa alveg takinu og að dansa, að dansa, já að dansa eins og glóð í myrkrinu Vindurinn ögrar og kitlar þrútið nef segir að dans allra dansa sé hænuskref Regnið trommar von í brjóstin þreytt að saman við þurfum ekki að hræðast neitt Kredit: Sigrún Harðardóttir: Pródúser, Strengjaútsetning, fiðla og söngur Pétur Ben: Nælongítar, Upptaka, Pródúser Kristofer Rodríguez Svönuson: Pródúser, Slagverk og Trommur Rúna Esradóttir: Pródúser Þórdís Gerður Jónsdóttir: Selló og Söngur Þóra Margrét Sveinsdóttir: Víóla og söngur Ásgeir Ásgeirsson: Tanboura Valdi Kolli: Kontrabassi Óskar Guðjónsson: Saxafónn Hafþór Karlsson Tempó: Pródúser, upptaka og mix á strengjum Birgir Jón Birgisson: Pródúser, Mix og Mastering 
- 
      
        
      
      Lag: Mugison Útsetning: Úlfur Eldjárn Sinfonia Viva: Flytjandi Ragnar Bragason: Pródúser Kom upphaflega út í myndinni Gullregn eftir Ragnar Bragason Birgir Jón Birgisson: Mix og Mastering 
